Ćttarmót á Hólum í Hjaltadal... wúhúúú !!!!
Nú er komið að því að við ætlum að hittast í sumar 22.-24 júlí á Hólum í Hjaltadal.
Bréf verður sent út fljótlega til ykkar með nánari upplýsingum.
TAKIÐ ÞESSA HELGI FRÁ :O)
Bestu kv nefndin
Ćttarmót 2011 á Hólum
Já nú er Rabbi búinn að skrifa mér á fésinu og tilkynna ættarmót sem halda á að Hólum í Hjaltadal þann 22-24 júlí
2011. Það eru allir sem mögulega geta, hvattir til að láta sjá sig. Ég vil minna á ættarmótssíðuna á fésinu líka.
Ég vil hvetja alla sem tök hafa á, að setja inn tengla á heimasíður sem þeir hafa eða facebook síður. kv Þórhildur
Tapađ / Fundiđ
Takk fyrir frábært ættarmót , við fjölskyldan skemmtum okkur mjög vel og bíðum bara spennt eftir næsta ..........
En hefur einhver rekist á svarblátt 66°N dúnvesti (herrastærð) í farangri sínum eftir helgina , ég tapaði mínu og er að vonast til að einhver hafi tekið það með sér að vestan.
Kveðja Ketill og fjölsk.
Sími 858 4128
Kvöldverđurinn.
Mér var bent á það að ég hef ekki komið nógu vel til skila upplýsingum um kvöldverðinn. En þannig er að við verðum með sameiginlegan kvöldverð sem keyptur er af Veitingasöluni í Reykjanesi. Maturinn kostar 2900 fyrir fullorðna sem eru 12 ára og eldri. Það kostar ekkert fyrir 12 ára og yngri.
Biðst innilegrar afsökunar á því að koma þessu ekki nógu skýrt til skila
Kveðja Þórhildur
Dagskrá og fl
Það hafa 102. fullorðnir og 53. börn verið skráð. Samtals 155. manns,
frábær mæting
Dagskráin hljómar einhvernvegin þannig að á föstudeginum er fólk að koma á staðinn tjalda og/eða koma sér fyrir. Hitta aðra ættingja sýna sig og sjá aðra og skemmta sér.
Á laugardegi er ætlunin að fara í gönguferð um Reykjanesið, hafa ratleik og aðra leiki fyrir bæði börn og fullorðna.
Milli kl.19 og 20 er sameiginlegur kvöldverður í íþróttahúsinu og í kvöldvaka þar sem ættin mun skemmta sér.
Veislustjóri verður Elli Ket og mun hann stjórna að sinni einstöku snilld.
Sigga Ket, Brynhildur og Þórdís Skúla verða allar með gítara þannig að það verður mikið sungið og spilað og hægt að skemmta sér fram eftir kvöldi með söng og dansi. Ef vilji er fyrir er kostur á að vera með varðeld í fjörunni um kvöldið. Samkvæmt veðurspá verður þurrt og gott veður þannig að enginn ætti að blotna í útilegunni alla vega ekki að utan.
Hlakka til að sjá ykkur öll.
Kveðja Þórhildur
Ćttarmótiđ
kv. Brynhildur
Styttist í ćttarmótiđ
Halló ættingjar góðir.
Það hefur ekkert heyrst frá ættingjum í Hafnarfirði ( Tótu fólki) og Akureyri (Friðriks fólki).
Ekki heldur frá neinum af Sumarlínu ættlið. Veit einhver um hverjir af þeim ætla að mæta.
Það verður sameiginlegur matur á laugardagskvöld og hann kaupum við af ferðaþjónustunni á staðnum. við verðum að vera tilbúinn með tölu þátttakenda fljótlega.
Þeir sem vitað er um að koma eru: Flest allir frá Gulla Ket. Flest allir frá Siggu Ket. Frá Ella koma flest allir sem búsettir eru í Bolungarvík og fl. Börn Skúla koma næsttum öll hef ég heyrt, með flest af sínum börnum og barnabörnum. Og börn Lilju ætla líka flest öll að mæta. Endilega ef þið sem ætlið að mæta en hafið ekki látið vita hér á síðunni eða í síma, þá gerið það endilega sem fyrst, því við þurfum bráðum að fara panta matinn. kveðja Þórhildur
Bloggiđ okkar
kveðja Þórhildur
Ađstađan í Reykjanesi
Saga af ömmu og afa
kveðja frá Bolungarvík.

